Hoppa yfir á aðal efni

Hvað geri ég ef aðgangslykillinn minn virkar ekki?

Ef þú færð villuboðin: „Svo virðist sem aðgangslykillinn þinn sé ógildur. Ef þetta gerist aftur skaltu hafa samband við þjónustustjóra“. Fylgdu skrefunum hér fyrir neðan til að reyna að leysa vandamálið:

  1. Vertu viss um að slá inn aðgangslykilinn í heild sinni, þ.m.t. fyrstu fimm stafina „ss://“ sem afritast hugsanlega ekki sjálfkrafa á klippiborðið. Hér er dæmi um hvernig aðgangslykil í heild sinni lítur út (aðeins sýnidæmi, lykillinn virkar ekki):
ss://[email protected]:39485/?outline=1
  1. Ef aðgangslykillinn afritast alls ekki á klippiborðið gæti það verið vegna skilaboðaforritsins eða verkvangsins sem þú notar. Þetta getur gerst ef þú færð skilaboð frá einhverjum sem er ekki á tengiliðalistanum. Ef þú ert að afrita kóðann úr skilaboðum skaltu ganga úr skugga um að þú hafir bætt sendandanum við sem tengilið og reyndu síðan að opna tengilinn aftur.
  2. Ef þú laukst 1. og 2. skrefi og færð enn villuboð er líklegt að lokað hafi verið fyrir þjóninn eða að aðgangslykillinn sé ekki gildur lengur. Ef þú ert þjónustustjóri skaltu prófa að búa til nýjan lykil fyrir þig. Að öðrum kosti skaltu hafa samband við þjónustustjóra til að fá nýjan lykil.