Hvernig set ég upp Outline-þjón?
Uppsetning Outline-þjóns er fyrsta skrefið til að geta notað Outline. Annað hvort þarft þú eða einhver sem þú treystir að setja upp þjón fyrir þig til að þú getir tengst opna netinu í gegnum Outline.
Áður en þú hefst handa
Áður en þú hefst handa við að setja upp þinn eigin Outline-þjón þurfa nokkur atriði að vera til staðar:
- Aðgangur að þínum eigin þjónum eða skýjaþjónustu á borð við DigitalOcean, Amazon Web Services (AWS) eða Google Cloud Platform (GCP).
Ef þú ert ekki þegar með aðgang að skýjaþjóni er lítið mál að stofna reikning hjá hvaða þjónustuaðila sem er, til dæmis einhverjum ofangreindra. Þú þarft sennilega kreditkort til að skrá þig. 2. Tölva sem keyrir macOS 10.9+, Windows 7.0+ eða Linux. 3. Outline Manager-forritið.
Uppsetning með DigitalOcean
Við sáum til þess að allir geti sett upp Outline á DigitalOcean á einfaldan hátt í aðeins nokkrum smellum. Þegar búið er að sækja og setja upp Outline Manager í tölvunni er hægt að velja DigitalOcean-uppsetningarkostinn sem mun birta leiðbeiningar á nokkrum skjámyndum um að stilla og setja upp Outline-þjón.
Uppsetning með annarri skýjaþjónustu
Þegar búið er að sækja og setja upp Outline Manager er hægt að setja upp Outline-þjón í sýndarvél með AWS, GCP, DigitalOcean eða annarri þjónustu. Ekkert umhverfanna er eins svo uppsetningarferli Outline Manager inniheldur leiðbeiningar fyrir helstu skýjaþjónusturnar, þar á meðal um að velja stillingar í sýndarvélinni áður en uppsetningarskriftan er keyrð til að setja upp Outline á þjóni.
Þarftu frekari aðstoð?