Hoppa yfir á aðal efni

Hvers vegna get ég ekki sett Outline Client upp í Windows?

Þú gætir séð þessi villuboð: „Því miður lítur út fyrir að Outline sé ekki sett rétt upp. Prófaðu að setja það upp aftur. Ef það virkar ekki skaltu senda inn ábendingu.“

Ef þú notar Outline í Windows gæti óvænt villa komið upp við og við. Í flestum tilfellum þarf að eyða TAP-tengi (TAP adapter) (rekli) Outline og setja Outline svo upp aftur.

Skrefin kunna að vera mismunandi eftir stýrikerfisútgáfu Windows en hér fyrir neðan eru almennar leiðbeiningar um að fjarlægja TAP-tengið og Outline og setja svo Outline upp aftur.

  1. Fjarlægja TAP-tengi fyrir Outline Client
    • Opnaðu „Tækjastjórnun“ og síðan „Nettengi“
    • Finndu skrána „TAP-Windows Adapter V9“ eða TAP-tengið sem tengist Outline
    • Fjarlægðu tengið eða eyddu því. Hafðu í huga að þetta gæti haft áhrif á önnur VPN-forrit sem þú hefur sett upp.
  2. Fjarlægja Outline Client
    • Farðu í „Forrit og eiginleikar“ og síðan „Fjarlægja forrit“
    • Finndu Outline Client-forritið og fjarlægðu það
    • Sæktu nýjustu útgáfu af Outline Client og settu forritið aftur upp í Windows-tækinu. Nýja uppsetningin ætti að setja upp nýtt TAP-tengi sjálfkrafa.

Ef þú ert enn í vandræðum skaltu hafa samband við þjónustudeildina.