Svona sendirðu ábendingar og tillögur
Takk fyrir að hjálpa okkur að bæta Outline! Nokkrar leiðir eru færar til að senda okkur ábendingar, ýmist nafnlaust eða með netfanginu þínu ef þú þarft að fá svar:
- Fyrir forritara: Outline er hugbúnaður með opinn kóða og kóðinn er hýstur í heild sinni á GitHub. Þú getur deilt hugmyndum þínum á GitHub eða í samfélaginu okkar á Reddit.
- Fyrir notendur: Þú getur sent okkur ábendingar í gegnum forritin Outline eða Outline Manager. Segðu okkur hvað ábendingin þín snýst um og ef þú vilt geturðu skilið eftir netfangið þitt svo við getum svarað þér. Við söfnum einnig tilteknum lýsigögnum um umhverfið þitt til að geta aðstoðað við úrræðaleit, s.s. um vafrann, stýrikerfið og hugbúnaðarútgáfuna sem þú notar.
- Í gegnum þetta vefsvæði: Þú getur smellt á tengilinn „Hafa samband“ hvar sem þú sérð hann á þessu vefsvæði.
- Alvarleg vandamál: Ef þú vilt tilkynna alvarlegt öryggisvandamál viljum við gjarnan fá tölvupóst með upplýsingum um það á security [at] getoutline.org.
Takk enn og aftur fyrir að gefa þér tíma til að deila hugleiðingum þínum með okkur.