Hvers vegna get ég ekki sett Outline Manager upp í Windows?
Þú gætir séð þessi villuboð: „Því miður lítur út fyrir að Outline sé ekki sett rétt upp. Prófaðu að setja það upp aftur. Ef það virkar ekki skaltu senda inn ábendingu.“
Ef þú notar Outline í Windows gæti óvænt villa komið upp við og við. Í flestum tilfellum þarf að eyða TAP-tengi (rekli) Outline og setja Outline svo upp aftur.
Skrefin kunna að vera mismunandi eftir stýrikerfisútgáfu Windows en hér fyrir neðan eru almennar leiðbeiningar um að fjarlægja TAP-tengið og Outline Manager og setja svo Outline Manager upp aftur.
- Fjarlægja TAP-tengi fyrir Outline Manager
- Opnaðu „Tækjastjórnun“ og síðan „Nettengi“
- Finndu skrána „TAP-Windows Adapter V9“ eða TAP-tengið sem tengist Outline
- Fjarlægðu tengið eða eyddu því. Hafðu í huga að þetta gæti haft áhrif á önnur VPN-forrit sem þú hefur sett upp.
- Að fjarlægja Outline Manager
- Farðu í „Forrit og eiginleikar“ og síðan „Fjarlægja forrit“
- Finndu Outline Manager-forritið og fjarlægðu það
- Sæktu nýjustu útgáfu af Outline Manager og settu forritið aftur upp í Windows-tækinu. Nýja uppsetningin ætti að setja upp nýtt TAP-tengi sjálfkrafa.
Ef þú ert enn í vandræðum skaltu hafa samband við þjónustudeildina.