Stjórna aðgangi að Outline-þjóni (með aðgangslyklum)
Þegar þú hefur lokið við að setja upp Outline-þjón geturðu byrjað að deila honum og stjórna aðgangi fólks að honum. Fólk sem fær boð frá þér getur sótt Outline-forritið og notað Outline til að vernda netumferð sína.
Deila aðgangi að Outline-þjóninum þínum
Eftir að uppsetningu Outline-þjónsins lýkur verður þér beint á upplýsingasíðu þjónsins í Outline Manager og þar geturðu búið til aðgangslykla. Nánar um aðgangslykla.
- Búa til lykla: Smelltu á litla „+“-táknið neðst á síðunni til að búa til nýja lykla.
- Deila lyklum: Hægra megin við hvern lykil er deilingartákn sem þú getur smellt á til að fá boð. Afritaðu og límdu þetta boð í skilaboðakerfi að eigin vali.
Eiginleikabeiðni: Aðgangi deilt í gegnum Outline Manager-forritið
Margir stjórnendur þjóna biðja okkur um að einfalda boðsferlið með því að gera þeim kleift að slá netfang einhvers beint inn í Outline Manager.
Því miður er ólíklegt að við bætum slíkum eiginleika við Outline Manager. Eitt grunngilda okkar er að gæta að persónuvernd og öryggi notenda sem þýðir að við hönnuðum hvergi stað þar sem hægt er að slá inn netföng eða samskiptaupplýsingar.
Þess vegna biðjum við stjórnendur þjóna um að nota öruggt skilaboðakerfi, s.s. tölvupóst eða öruggt spjall, til að senda notendum boð.
Upplifun notanda eftir að þú deilir aðgangslykli með viðkomandi
- Notandinn smellir á uppsetningartengilinn í tækinu sínu
- Notandinn fær beiðni um að setja upp Outline-forritið ef viðkomandi hefur ekki gert það þegar
- Notandinn kemur á fyrstu tengingu við Outline-þjóninn í gegnum einkvæma lykilinn sem fylgir með boðinu
- Notandinn getur nú notað hnappinn til að tengja/aftengja til að stjórna aðgangi sínum að netinu í gegnum Outline-þjóninn
Fjarlægja aðgang að Outline-þjóninum þínum
Hægra megin við hvern lykil á þjóninum á upplýsingasíðu þjónsins í Outline Manager má sjá valmynd með valkosti til að eyða lykli. Þegar lykli er eytt lokar það fyrir aðgang viðkomandi lykils að þjóninum.