Gagna- og upplýsingasöfnun
Outline safnar ekki persónuupplýsingum nema þú samþykkir að gefa þær upp. Outline safnar heldur ekki upplýsingum um vefsvæðin sem þú opnar eða við hverja eða hvað þú hefur samskipti.
Ef þú ert að stofna eða skrá þig inn á reikning hjá skýjaþjónustu þriðja aðila í gegnum Outline Manager, fáum við engar upplýsingar sem þú veitir skýjaþjónustu þriðja aðila á borð við netfang, nafn, reiknings- eða greiðsluupplýsingar.
Upplýsingar sem við fáum sjálfkrafa
Við söfnum tvenns konar upplýsingum sjálfkrafa.
- IP-tala
Outline-þjóns er skráð hjá Quay.io og við fáum aðgang að henni þegar þjóninn uppfærist sjálfkrafa með nýjustu öryggis- og eiginleikaúrbótunum. IP-tala þjónsins kann að auðkenna skýjaþjónustuna sem er notuð og borgina þar sem Outline-þjóninn er uppsettur en engar upplýsingar eru veittar um það hver rekur þjóninn eða hvaða aðilar hafa aðgang að honum.
- Ópersónugreinanlegar tækniupplýsingar
Ef Outline hrynur, ef feigðarbrigði á sér stað eða ef þú sendir ábendingu handvirkt í gegnum Outline-forritið verða neðangreindar upplýsingar tilkynntar. Þessar upplýsingar verða eingöngu notaðar til að bera kennsl á og lagfæra vandamál sem tengjast afköstum og stöðugleika.
- Land
- Tungumálskóði
- Dagsetning og tími hruns/undantekningar og allt að 100 tilvik fram að því, til dæmis um tilvik þar sem notandi opnar hlutann „Um“
- Undantekningarskilaboð sem er safnað saman á stöðufræðilegan hátt
- Heiti og útgáfa stýrikerfis
- Gerð síma (ef það á við)
- Ræsingartími forrits
- Vafri
- Uppbygging
- Útgáfa Outline og útgáfunúmer smíðar
Þessar upplýsingar eru fluttar með HTTPS til Sentry (sentry.io) sem er villuskráningarþjónusta þriðja aðila með opinn kóða. Sentry notar ýmsa tækni og þjónustu sem stenst staðla atvinnugreinarinnar til að gæta öryggis gagnanna þinna til að koma í veg fyrir óheimila notkun þeirra, uppljóstrun, notkun og tap. Ef þú ert með spurningar um reglur Sentry skaltu skoða https://sentry.io/security/ og https://sentry.io/privacy/ eða hafa samband við [email protected]. Öll Outline-gögn sem Sentry geymir eru lokuð óviðkomandi aðilum svo aðeins starfsfólk Outline hafi aðgang að þeim.
Upplýsingar sem við fáum aðeins þegar samþykki liggur fyrir
Outline tilkynnir starfsfólki Outline um eftirfarandi upplýsingar þegar samþykki liggur fyrir.
- Notkunarmælingar
Hver Outline-þjónn safnar sjálfkrafa upplýsingum um fjölda bæta sem er fluttur, tímann sem notandi var tengdur við þjónninn, löndin og sjálfstýringarkerfin þaðan sem notkun auðkennanna á uppruna sinn og um það hvort kveikt eða slökkt hafi verið á einhverjum eiginleikum. Þessi upplýsingasöfnun nær til undanfarinnar klukkustundar og til hvers og eins aðgangslykils. Hvorki innihald samskiptanna né persónugreinanleg lýsigögn (t.d. innskráningar, netföng, auðkenni tækja o.s.frv.) eru skráð. Öll mæligildi tengjast auðkenni þjóns. Leiðbeiningar um breytingu á auðkenni þjónsins má finna hér.
Sjálfgefið er að Outline-þjónar deili þessum upplýsingum ekki með starfsfólki Outline. Ef stjórnandi þjónsins samþykkir með skýrum hætti að þessum notkunarmælingum sé deilt verða upplýsingarnar sendar starfsfólki Outline á öruggan hátt á klukkustundarfresti. Eftir 60 daga verður notkunarmælingunum safnað saman á landsgrunni. Stjórnendur þjóna geta breytt deilingarstillingum notkunarmælinga hvenær sem er á valmyndinni „Stillingar“ í Outline Manager.
Við kunnum að meta að þú deilir nafnlausum mæligildum um notkun þjónsins með okkur þar sem við notum slíkar upplýsingar til að mæla þróun notkunar og til að bæta vöruna.
Sem dæmi má nefna að ef stjórnandi þjóns samþykkir að deila notkunarmælingum með okkur kunnum við að móttaka upplýsingar um að þjónn með auðkennið 12345 hafi verið notaður í 3 klukkustundir í gær, hafi flutt alls 500 megabæti af gögnum frá þremur lyklum í Bandaríkjunum og þremur lyklum í Kanada og að kveikt hafi verið á gagnamarkaeiginleikanum.
- Ummælin þín og netfangið ef þú sendir inn ábendingu
Forritin Outline Manager og Outline gera þér kleift að senda starfsfólkinu ábendingar. Við mælum gegn því að taka fram persónugreinanlegar upplýsingar en netfangsreitur er í boði sem valfrjáls kostur ef þú vilt fá svar frá starfsfólkinu. Við söfnum einnig sjálfkrafa tilteknum grunnupplýsingum til að geta skilið ábendinguna frá þér. Skoðaðu atriði 2 hér að ofan undir „Upplýsingar sem við fáum sjálfkrafa“ til að sjá hvaða gögnum við söfnum. Frekari upplýsingar um vinnureglur Outline hvað varðar öryggi og persónuvernd má finna hér.
Ef þú notar betaútgáfu Outline-forritsins í Android kunnum við að nota Firebase-þjónust Google til að safna villuleitarupplýsingum sem hjálpa okkur að greina vandamál og bæta Outline. Frekari upplýsingar um öryggisreglur og persónuverndarstefnu Firebase má finna á vefsvæði þeirra: firebase.google.com/support/privacy. Ef þú vilt ekki að Outline sendi þessar upplýsingar í gegnum Firebase skaltu nota söluútgáfu forritsins.