Hoppa yfir á aðal efni

Hvernig endurstilli ég auðkenni þjóns?

Auðkenni þjóns er auðkenni sem búið er til af handahófi þjónsmegin þegar þú býrð til Outline-þjón. Þú getur séð það þegar þú samþykkir deilingu nafnlausra mæligilda í stillingaviðmótinu. Þú getur fundið auðkenni þjóns með því að fara í stillingar => fletta neðst => merkja við „Deila nafnlausum mæligildum“.

Auðkenni þjóns tengir saman nafnlausar notkunarupplýsingar sem eru skráðar yfir tiltekið tímabil. Ef þú vilt endurstilla auðkenni þjóns og fá nýtt þarftu að skipta núverandi Outline-þjóni út fyrir nýjan.

Ef þú notar DigitalOcean sem skýjaþjónustu geturðu endurstillt þjóninn þinn með því að fara í stillingarnar og velja „Eyða þjóni“. Ekki er hægt að afturkalla þessa aðgerð og hún mun eyða öllum auðkennum. Í beinu framhaldi af aðgerðinni færðu beiðni um að búa til nýjan þjón á staðsetningu að eigin vali og nýtt auðkenni þjóns verður búið til.