Hvað kostar að keyra Outline?
Hugbúnaður Outline er gjaldfrjáls fyrir alla, hvort sem um er að ræða stjórnanda þjóns sem stjórnar VPN-neti eða einhvern sem notar Outline til að fá aðgang að opna internetinu.
Til að hægt sé að keyra Outline þarf þó aðgang að skýjaþjónustu. Stjórnendur þjóna sem eru þegar með aðgang að þjóni geta sett upp Outline á viðkomandi þjóni án viðbótarkostnaðar. Aðilar sem eru ekki með aðgang að þjóni geta fengið aðgang í gegnum skýjaþjónustu á borð við DigitalOcean eða Amazon Web Services fyrir um 5 USD á mánuði fyrir 1 TB gagnaflutningskvóta — sem nægir til að styðja hundruð notenda á einum þjóni.
Hér er dæmi um hvernig hægt er reikna út áætlaðan kostnað við að keyra Outline í gegnum skýjaþjónustu að eigin vali:
| Ef gert er ráð fyrir að mánaðarleg gagnaflutningsnotkun hvers notanda sé 5 gígabæti myndi áskrift sem kostar 5 USD á mánuði duga fyrir um 200 notendur samtímis. Þannig yrði kostnaðurinn á hvern notanda aðeins um 2,5 sent á mánuði. Hafðu í huga að gagnaflutningsnotkun hvers notanda á mánuði getur verið mjög misjöfn í takt við það hvort notkunin krefst lítillar eða mikillar bandvíddar. Flestar skýjaþjónustur eru þó sveigjanlegar til að gera ráð fyrir umferðaraukningu. |
|---|
Raunin er sú að notkun Outline er algerlega nafnlaus í augum Jigsaw og Google. Við rekjum ekki auðkenni þitt eða umferð og engin tekjuöflunaráætlun er til staðar. Þess í stað vinnum við með samfélagi opna kóðans til að tryggja að við getum útvegað hugbúnaðinn án þess að notendur þurfi að greiða fyrir hann. Frekari upplýsingar um gögnin sem við söfnum má finna hér.