Hoppa yfir á aðal efni

Sjálfvirk uppsetning á Google Cloud

Yfirlit

Outline Manager felur í sér eiginleika sem gerir þér kleift að stilla Outline-þjón sjálfkrafa á þjóni sem keyrir á Google Cloud. Ef þú velur að nota þennan eiginleika mun Outline Manager biðja þig um að skrá þig inn með Google-reikningnum þínum en slíkt veitir tilteknar OAuth-heimildir fyrir staðbundna uppsetningu Outline Manager í þeim tilgangi að stilla Google Cloud-reikninginn þinn.

Ef þú vilt ekki veita þessar heimildir geturðu fylgt ítarlegum uppsetningarleiðbeiningum í Outline Manager til að keyra Outline á Google Cloud Platform.

Heimildir veittar

Outline Manager krefst eftirfarandi heimilda frá Google-reikningnum þínum til að hægt sé setja upp sjálfvirkt.

Google Cloud Platform

  • Skoða og hafa umsjón með gögnum í Google Compute Engine
  • Skoða gögnin þín í öllum Google Cloud-þjónustum og sjá netfang Google-reikningsins þíns

Grunnupplýsingar reiknings

  • Sjá aðalnetfang Google-reikningsins þíns
  • Tengja þig við persónuupplýsingar þínar á Google

Aukinn aðgangur

  • Hafa umsjón með Cloud Platform-verkefnunum þínum
  • Skoða og hafa umsjón með innheimtureikningum Google Cloud Platform
  • Hafa umsjón með þjónustustillingunum þínum fyrir forritaskil Google

Þessar heimildir gera okkur kleift að styðja við ítareiginleika til að stjórna Outline-þjónum, þar á meðal:

  • Gera þér kleift að velja réttan greiðslureikning
  • Búa til nýtt verkefni til koma skipulagi á Outline-þjóna
  • Skrá tiltæk gagnaver
  • Búa til nýjar sýndarvélar til að keyra Outline
  • Stilla nýja sýndarvél með Outline

Afturköllun heimilda

Þú getur afturkallað aðgang Outline Manager að Google Cloud Platform með því að opnaReikningurinn minn. Ef þú afturkallar aðgang halda þjónar sem þú bjóst til með sjálfvirkri uppsetningu áfram að keyra en munu hætta að birtast í Outline Manager. Til að endurheimta aðgang að þeim skaltu einfaldlega tengjast Google Cloud Platform á ný með því að hefja sjálfvirka uppsetningarferlið.

Verkefnaskipulag Outline

Sjálfvirk uppsetning Google Cloud notar staktGoogle Cloud-verkefni til að flokka Outline-þjónana þína. Verkefnið er búið til við fyrstu notkun sjálfvirku uppsetningarinnar með tillögu að auðkenni verkefnis sem byrjar á „Outline-“ og endar á handahófsvalinni stafarunu. Þú getur valið annað auðkenni verkefnis þegar það er búið til ef þú vilt. Verkefnið fær heitið „Outline-þjónar“.

Greiðslureikningur

Google Cloud-verkefni þurfa tengdan „greiðslureikning“ þar sem greiðsluupplýsingar eru tilgreindar. Þegar þú notar sjálfvirka uppsetningu Google Cloud í fyrsta sinn færðu beiðni um að gefa upp greiðslureikning til að tengja við Outline-þjónana þína. Stundum hættir þjónn að virka vegna vandamáls varðandi greiðslureikninginn. Ef það gerist skaltu skrá þig inn á Google Cloud Console, finna Google Cloud-verkefnið sem tengist Outline (með heitið „Outline-þjónar“) og uppfæra greiðslustillingarnar.

Eyðilegging þjóna

Ef þú vilt eyðileggja þjóna sem voru búnir til með sjálfvirkri uppsetningu er einfaldast að gera það innan Outline Manager. Ef þú vilt hins vegar eyðileggja þjónana upp á eigin spýtur geturðu skráð þig inn áGoogle Cloud Console, fundið verkefnið sem var búið til við upphaflegu uppsetninguna (með heitið „Outline-þjónar“) og ýmist eytt gögnunum þar eða lokað verkefninu.