Hoppa yfir á aðal efni

Algengar spurningar um uppsetningu Outline-þjóns

Get ég notað Outline án þjóns?

Nei, því miður. Outline-hugbúnaðurinn krefst aðgangs að þjóni, hvort sem hann er í umsjá þinni, fyrirtækisins þíns eða traust þriðja aðila.

Hversu langan tíma tekur að setja upp Outline-þjón?

Í flestum tilfellum tekur það innan við fimm mínútur. Þú getur sett Outline upp hjá hvaða skýjaþjónustu sem er en í samstarfi við DigitalOcean getum við boðið upp á notendavænni, leidda uppsetningarupplifun sem gerir þér kleift að setja upp þjóninn með nokkrum smellum – engar skriftur.

Ef þú velur AWS, GCP eða ítarlega uppsetningu höfum við einfaldað uppsetningarferli þjónsins niður í eina skriftu sem virkar í flestum umhverfum.

Hvar get ég sett upp Outline-þjón?

Þú getur sett upp Outline-þjón hjá flestum skýjaþjónustum, óháð því hvar þær starfa.

Einfaldast er að setja þjóninn upp hjá DigitalOcean þar sem þau eru með þjóna víða, t.d. í Amsterdam, Toronto, San Francisco og Singapúr. Ef þú vilt setja upp hjá annarri skýjaþjónustu eða í þínu eigin kerfi geturðu valið „Ítarlegar stillingar“ í Outline Manager-forritinu og fylgt uppsetningarleiðbeiningunum með uppsetningarskriftu.

Hvar ætti ég að setja Outline-þjóninn minn upp?

  1. Þú skalt hafa nokkur atriði í huga við val á staðsetningu Outline-þjóns:
  2. Staðsetning Outline-þjóns hefur áhrif á upplifun notenda af netinu. Ef þjónninn er til dæmis staðsettur í Amsterdam verður upplifun notanda sem notar þjóninn eins og viðkomandi væri raunverulega staddur í Hollandi. Sum vefsvæði gætu jafnvel birst á hollensku. Yfirleitt er hægt að sneiða hjá staðbundnu tungumáli með tungumálavali vefsvæðisins.
  3. Fjarlægðin á milli notenda þinna og Outline-þjónsins gæti haft áhrif á hraða. Almennt getur raunveruleg fjarlægð á milli notenda Outline og þjónsins haft áhrif á nethraða notendanna. Í flestum tilfellum geturðu valið þjónsstaðsetningu sem er næst staðsetningu áætlaðra notenda en þú getur skoðað Submarine Cable Map til að sjá hvaða internetstrengir tengjast landinu þínu eða svæði.
  4. Staðsetning VPN-þjóns getur haft áhrif á lagarammann sem gildir. Hafðu í huga að Outline-hugbúnaðurinn skráir ekki umferðina þína. Nánar um öryggi og persónuvernd við notkun Outline.