Hvernig á að setja upp marga Outline-þjóna
Til að setja upp fleiri Outline-þjóna skaltu smella á „+“-táknið á yfirlitssvæðinu vinstra megin í Outline Manager-forritinu. Sömu leiðbeiningar gilda þegar nýr þjónn er settur upp og gilda þegar sá fyrsti er settur upp.
- Við setjum ekkert hámark á fjölda Outline-þjóna sem hver og einn getur búið til.
- Fyrir hvern Outline-þjón sem þú býrð til þarftu samsvarandi sýndarvél.
- Þegar þú býrð til viðbótarvélar eða „Droplets“ gætirðu þurft að greiða skýjaþjónustunni hærri gjöld. Athugaðu áskriftarverðið hjá skýjaþjónustunni þinni til að vera viss um að vita við hverju þú getur búist.
Að búa til viðbótar Outline-þjón á DigitalOcean
Eftir að þú smellir á „+“-táknið og velur að setja upp á DigitalOcean fylgirðu sömu leiðbeiningum og þegar þú settir fyrsta þjóninn þinn upp. Þar sem Outline Manager er samþætt við DigitalOcean getum við einnig búið til „Droplet“ fyrir þig án þess að þú þurfir að fara úr Outline Manager-forritinu.
Athugaðu að Outline Manager getur aðeins stutt einn DigitalOcean-reikning í einu. Ef þú vilt bæta við eða búa til fleiri Outline-þjóna á öðrum DigitalOcean-reikningum geturðu bætt þeim við sem ítarlegri stillingu.
Að búa til viðbótar Outline-þjón á GCP, AWS eða hjá annarri skýjaþjónustu
Byrjaðu á því að búa til nýja sýndarvél hjá skýjaþjónustunni sem þú velur. Opnaðu svo Outline Manager og fylgdu leiðbeiningunum fyrir ítarlega uppsetningu, líkt og þú kannt að hafa gert í fyrsta skiptið.