Hvernig fæ ég aðgangslykil?
Outline er frábrugðið VPN-þjónustum sem þú kaupir aðgang að. Það er verkfæri sem gerir þér kleift að keyra og deila aðgangi að lokuðum VPN-þjóni. Eini aðilinn sem getur veitt aðgangslykil er þjónustustjóri. Starfsfólk Outline dreifir hvorki gjaldfrjálsum né gjaldskyldum aðgangslyklum. Við erum ekki með neina opinbera samstarfsaðila fyrir Outline-aðgangslykla, að undanskildum Paskoocheh á persnesku.
Hér eru þrjár leiðir til að fá aðgangslykil:
- Biddu einhvern um að bjóða þér í þjóninn sinn: Ef þú þekkir einhvern með Outline-þjón skaltu hafa samband við viðkomandi og biðja um aðgangslykil.
- Búðu til þinn eigin þjón: Sæktu Outline Manager í Windows-, Mac- eða Linux-tölvu og settu upp þinn eigin, lokaða Outline-þjón. Ferlið er einfalt, sérstaklega í gegnum DigitalOcean-skýjaþjónustuna.
- Notaðu þjónustu Outline eða Shadowsocks: Einnig er hægt að nota Outline-biðlarann með þjónustum þriðju aðila sem nota Outline eða Shadowsocks-samskiptaregluna. Til dæmis:
- nthLink keyrir gjaldfrjálsa þjónustu sem byggist á Outline með breyttri útgáfu af Outline-biðlaranum.
- ASL19 keyrir breytta útgáfu af Outline sem kallast BeePass sem og a Telegram-botta sem veitir gjaldfrjálsa aðgangslykla að BeePass-þjónum.
- Notendur sem tala persnesku geta einnig beðið um aðgangslykil að Outline frá Paskoocheh frá ASL19.
Þegar þú hefur sótt Outline Client-forritið skaltu afrita og líma aðgangslykilinn í Outline Client til að tengjast Outline-þjóninum.