Hvernig eyði ég Outline-þjóni?
Hjá flestum skýjaþjónustum er tiltölulega auðvelt að fjarlægja tiltekna sýndarvél sem er í notkun.
Ef þú notar DigitalOcean sem skýjaþjónustu geturðu eytt fyrirliggjandi sýndarvél með því að smella á tannhjólshnappinn og velja „Eyðileggja þjón“. Í beinu framhaldi færðu beiðni um að búa til nýja sýndarvél á staðsetningu að eigin vali.
Ef þú fjarlægir Outline-þjón verður honum eytt varanlega og aðgangslyklar hans hætta að virka. Ef þú vilt ekki að truflun verði á aðgangi fólks í gegnum Outline þarftu að setja upp nýjan Outline-þjón og deila aðgangi að honum áður en gamla þjóninum er eytt.